bloggsvæði Palinu
04.06.2008 23:09:16 / kula

dunda sér...

Skelli þessu inn....hef ekkert annað að gera.....


1.   ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ?   já ömmum mínum báðum
 
2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?  í bíó á laugardaginn, á belevie or not: Sex and the city.........
 
3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? Stafsetning góð, skriftin ekki,
 
4. HVAÐA KJÖT FINNST ÞÉR BEST?  Lambakjötið og þá VETURGAMALT
 
5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? 3 stykki takk, Magga Robert og Brynju

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ?  Er bara alls ekkert viss um það

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? Nei alls ekki, þyrfti kannski kunna það betur
 
8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ?   NEI, get ekki einu sinni rólað mér vegna svimatilfinningar.
9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? cheerios með banana

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?  Nei, nema í ræktinni, því þá verð ég

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ?  Já það held ég oftast...en ekki alltaf 

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?  Klárlega ís m/dýfu og fæst i Fákafeni

  13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?  Brosinu

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ? báðir, fer eftir tilefninu...

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ?  Tuðið i mér, óöryggið, morgunfúllyndið, óstaðfestan, ....christ get haldið endalaust áfram
 
16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ?  Ömmu Ingimundu, og sakna heimsókna frá systkinum mínum.....heheh og hana nú
 
17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?  Já já já

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? Er enn í gallapilsi síðan í dag og innskóm, aldrei þessu vant ekki komin í náttbuxur

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?  Dinkelbergerbrauð með rækjusalati

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?  TV- rokksagan hljómar i stofunni
 
 21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? Bleikur en myndi samt skipta litum stundum
 
22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ?  Hreingerningarlykt heima hjá mér fær mig til að skjálfa...en svo töðulyktin í sveitinni
 
23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ?  Lóu vinkonu of course 
 
 24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ?  Stal þessu af annarri bloggsíðu hjá manneskju sem ég þekki ekki neitt
 
25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ?  Strákana okkar í handboltanum
 
26. ÞINN HÁRALITUR ?  Ljóshærð eins og Pamela Anderson thíhí  
 
27. AUGNLITUR ÞINN ?  blár
 
 28. NOTARÐU LINSLUR ?  Nei nei og ekki enn lesgleraugu þrátt fyrir aldur
 
 29. UPPÁHALDSMATUR ?  Flott lambasteik, nú nautasteik, svo kjúklingur, reyndar finnst  mér allt gott

30. HVORT LÍKAR ÞÉR BETUR, HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?  góður endir, sama hvernig endirnn er

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ?   Sex and the city.... ástarsorgir, höfnun, kynlíf, margaritur, hva mér fannst ég eiga að vera þessi fimmta.....

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ?  Ef ástríðan tekur völdin....þá má allur pakkinn dúndrast á, maður er nú orðin þroskaður sko heheh
 
33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Epli og appelsinur búnar að liggja i bleyti í sólarhring, og svo mikill þeyttur rjómi, unaðslegt

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ? ja hérna,ekki grænan grun

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ?  Helgi bróðir...afþví hann les þetta ekki

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ?  E.Dale Carnegie, Sigraðustu á áhyggjunum áður en áhyggjurnar sigra þig, og líka um munkinn sem seldi bílinn sinn, já og stærðfræði 203
 
37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ?  hef enga músamottu
 
38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? SPOOKS breska leyniþjónustuþáttinn
 
 39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?  Bítlarnir
 
 40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? Kýpur

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? Samviskusöm, ábyrgðarfull, ohhh finn ekki meir þrátt fyrir mikla íhugun
 
42. HVAR FÆDDISTU ? í Reykjavík

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ? Helga bró, Sillu, Vordisi, Lilju mágkonu  eiginlega spennt fyrir öllum svörum


Og þar hafið þið það.....þessar algjörlega ónauðsynlegum upplýsingum frá mér:)



» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 12:43:32 / kula

sex

og það grænt sex sem ég fékk á bílinn.. Þó ég sé hrifin af tölunni sex ( hmm og allt sem tengist sex ef út i það er farið:)  þá ætla ég nú ekki að keyra annað árið í röð með grænt sex á frontinum.  Athugasemd við spindla...? hef ekki hugmynd um hvað það þýðir en fer í að kynna mér málð.    Fór ekki í stutta pilsinu..... hefði kannski bara fengið rautt sex þá ?
Fór austur í gær við skólaslit hjá Róbert, hann stóð sig vel í vetur og fékk fínar einkunnir, þar af 9,5 í ensku :))  guttinn orðinn útlærður í ensku, búandi á enskumælandi heimili og enskar stöðvar i tonnavís í tvinu hjá honum.  Ég er stolt af stráknum, það er töggur í honum:) 
Bakaleiðinni fékk mér kaffi hjá Örnu, og húsið hristist þrisvar á þeim hálftíma sem ég staldraði við.  Hjónakornin brostu bara út í annað og rugguðu með, orðin vön þessum þúsund eftirskjálftum sem hafa komið.  Allt slapp nú nokkuð vel hjá þeim, einhver glerbrot en mer skilst að þau hafi nú ekki orðið illa fyrir barðinu á þessu.  Þetta er auðvitað ótrúlega merkilegt fyrirbæri jarðskjálftar, minnir mann á hversu ómerkileg og lítilvæg mannskepnan er í rauninni, náttúran yfirtekur allt stórt í huga manns.

Krakkarnir komnir í sumarfri hjá pabba sínum, þó Brynja útskrifist ekki fyrr en á föstudag, þá skildi eg hana eftir fyrir austan, kemur í bæinn til að taka við einkunnum.  Svo ég tel mig vera i hálfu sumarfríi, get einbeitt mer að stærðfræðinni sem eg tek nuna i sumarskolaum OG liggja á bæn að einhver detti inn i vikunni sem vill kaupa íbúð á útsölupris...  Hef trú á samtakamætti hugsana svo endilega beinið hugsunum i þessa átt fyrir mig, kæru vinir og vandamenn. :)
Er að hugsa um að skella mér í bíó, næ ekki i neinn til að fara með mér svo eg dríf mig á útsölutima 500 kall á sex and the city.......... verður örugglega cool:)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 19:05:41 / kula

Vonbrigði

Það gerðist ekkert í gær, nákvæmlega ekkert !  Þrátt fyrir að 2 hafi boðað sig að skoða kom ENGINN.  Svakalega varð ég vonsvikin, ég er alveg að fara á límingunum og stressið farið að gera verulega vart við sig.  Þrátt fyrir að margir segi ...hva þú leigjir bara , þá er það ekki vænlegur kostur fyrir mig.  Enda búin að ákveða innra með mér að þessi búseta hér á þessum stað sé að ljúka, og nýr kafli sé að byrja í mínu lífi.   Búin að vera pirruð í dag og bara í vondu skapi almennt.     Fannst ég mikið finna fyrir því í dag hvað ég er eiginlega mikið ein á báti,   veit að það er eigingjarnt að hugsa þannig, en shit þannig leið mér í dag.    Enda um leið og maður fer i svona skap þá hefur maður allt á hornum sér.     En vonandi lufsast maður út þessu grettu dæmi... 
En annars verð ég að segja frá því að ég fékk lánað hjól hjá nágranna mínum og hjólaði í vinnuna.   Það var nú aldeilis fínt, var nákvæmlega 14 mínútur á leiðinni og af þeim tíma staldraði ég helling við rauð ljós.   Var nú sniðugt, en um það leyti þegar ég ætlaði heim aftur á hjólinu, var hringt og bíllinn minn tilbúinn af verkstæði.......JA það var auðvitað ástæða fyrir því að maður hjólaði heheh....    Og í fyrramálið verður  brunað á skoðunarstöð og tékkað hvort  ég fái almennilegann miða á bílinn, ekki grænan eða rauðan.   Spurning að fara í stutta pilsinu......því mér skilst að bremsueitthvað sé á síðasta snúning en eins og bifvvirkinn sagði: Þeir gætu sett út á það, en þeir gætu líka sleppt því, ætli sé möguleiki að þeir sleppi því ef maður er í stutta pilsinu..........?  Kemur í ljós:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 19:55:32 / kula

Allir á eitt með

mér núna.... krossið fingur og sendið sterkar hugsanir i Vesturbergið.  Er að sýna íbuðina, vonandi í síðasta sinn því ef ég ætla mér að komast i nám í haust þá verð ég að losa mig við hana og þær skuldir sem fylgja henni.    Búin að vera kófsveitt að bóna og dubba hreysið, setja blóm í vasa ( verst það er orðið svo huggó að ég tími ekki að fara:) . Ef ekki gengur núna að losa sig við kofann þá auglýsi ég eftir leigjendum en nenni bara varla ekki að standa í því.    Mikið lifandis skelfing er ég nú fegin að eiga ekki 4oo fermetra hlussuhús,  held svei mér þá að það væri ekkert slæmt að eiga ekki neitt, ég væri glöð að geta leigt mér á SANNGJÖRNU verði en reyndar þar sem maður væri seif í einhvern tíma, en það er nú ekki þannig á markaðnum núna
en farin

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 18:44:03 / kula

hæhójibbíjæ

Jæja einkunnir komnar !
Fékk 8 í báðum fögum.  Og bara mjög sátt við það, svona miðað við að maður var að starta sér:))  Veit að ég verð dáldið gráðug í næsta, held að níur séu eitthvað sem mig langar að sjá.   En rosalega er gaman að tölta í skóla og ná í einkunnir, ég fíla það í tætlur bara.    Er komin af stað, fyrstu skref.      Þá er að snúa sér að næsta, ég ætla að lofa sjálfri mér að vera dugleg, og láta nú ættingja og vini í friði með andvörp, ég verð að segja að finnst ég hafi nú verið orðin þreytt á mér  með tuðið i mér, held ég að aðrir hafi verið orðnir hundþreyttir á mér !!
En ég afsaka mig með þvi að ég hef verið óörugg og miklaði stundum litla hluti fyrir mér.   Góður dagur í dag:)   Ætla að skella mér í sumarskólann, hugsa ég taki bara eitt fag, krakkarnir verða reyndar i sumarfríi hjá pabba sínum í júní svo tímann ætti ég að hafa nógan, þe. ef ég þarf ekki að pakka draslinu mínu, en jæja ef það gerist þá tékka ég á góðhjörtuðum vinum og ættingjum sem kannski geta hlaupið undir bagga með manni.   Ætla allaveganna ekki að hafa áhyggjur af því núna............. Brynju minni fannst nú við hæfi að halda upp á daginn með pulsupartýi.......hmmm hefði sjálf kannski viljað steik og rauðvín, en jæja, ef pulsuparty gleður þá skellir maður þvi á:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 21:39:33 / kula

svo langt síðan

að ég skrifaði síðast að ég gleymdi lykilorðinu minu og ja...þurfti nokkrar tilraunir til að komast inn8|  .  Annars geri ég ekki ráð fyrir að mín hafi verið saknað, en vona þó samt, því mér finnst skemmtilegast þegar maður fær einhver comment.
Fór norður í afmæli þar síðustu helgi, Silla mín kæra vinkona hélt uppá fertugsafmælið sitt með stæl, og það var alveg aldeilis skemmtilegt.   Skemmti mér konunglega, ( kannski ekki eins mikið á leiðinni heim rétt eftir hádegið daginn eftir ), en sem betur fer var Ási bró með í för og hann fékk að keyra alla leið, því ég þurfti á blundi að halda og þess á milli að háma í mig súkkulaði.  Síðan hef ég klárað 2 próf...var ansi mikið stressuð fyrir annað þeirra, undirbjó mig vel og svei mér þá, ég held ég hafi klárað mig á þeim.  Rosalega var góð tilfinning að labba út og vera búin, stórskemmtilegt og ég er klárlega komin með lærdómsfíkn, ég held sko áfram, alveg klárt mál.    Öðru leyti hefur verið rólegt hjá mér, á öllum sviðum.    Fékk smá "vantar kall" sting um kvöldmatarleytið í kvöld, þegar grilllyktin ætlaði allt að kæfa hér í nágrenninu, málið er að mér finnst leiðinlegt að grilla sjálfri, en miklu skemmtilegra að hafa einhvern á grillinu og ég dútlast í salati inni......   en stingurinn hvarf nú fljótlega, sem betur fer, þetta er einhver fjandans óværa sem læðist að manni öðru hvoru.  En líklega eðlilegt og normalt:^)  En ég er að verða nokkuð góð í að vera ónæm fyrir þessarri óværu, hún fær allaveganna ekki að hreiðra um sig hjá mér, þó hún rekist við og við í sálartetrið.  
Orðin aðeins óvær sjálf yfir því að plön þau sem ég hef gert fyrir haustið, riðlist eitthvað, en til þess að plönin gangi upp þarf ég að selja hreysið og því miður virðist allt vera steindautt núna á ibúðamarkaði.   Er farin að huga að því að leigja út kotið, en einhver uggur í mér með það einhvernveginn,  veit eiginlega ekki hvernig ég sný mér ut ur því. 
En jæja það hrekkur einhver lausn af stað, trúi ekki öðru.    (pepp pepp...):) 
Brynja fór í sund með nágrönnum nú í kvöld , held hún hafi galnast eitthvað í dag, var úti í dag í vatnsslag á SUNDBOL.....  Hefði nú galað á hana hefði ég verið heima, þarna fær maður enn einn samviskustinginn að hún sé ein heima eftir skóla og þar til ég kem heim úr vinnu, maður er nú lagin við að pota sér í samviskubitin útaf öllu.   En held hun hafi fattað að þetta væri aðeins of snemmt, allaveganna var hún komin í flíspeysu og úlpu þegar ég kom svo heim:$   jæja þetta var nú blogg dagsins hjá mér.........

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 14:15:12 / kula

hmmm

þurfti að skjótast að ná mér i einn lítinn hlut sem ég hélt að fengist í Kringlunni, en ekki til þar og þá fór eg i Smáralind.....og mikið svakalega leiðist mér að fara þarna........ úffúff ég hugsaði á leiðinni heim, það er til fullt af fólki sem eyðir hreinlega helgunum í þetta, ég svitnaði bara, ákvað að fara ekki þarna í náinni framtíð.  Reyndar hef ég alveg haldið út þarna ef ég hef átt pening sem mátti spreða, en  það er auðvitað alltof sjaldan sem það gerist.:klikk:
En jæja, næst a dagskrá er árshátið.....farin á Þingvelli i mat og fínerí:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 21:44:11 / kula

Unaður....

Sko...ég er búin að uppgötva nýja tegund af unaði:)    Vinnan mín er með flotta gjöf í gangi þennan mánuðinn á þá sem panta hjá okkur vörur.   Daginn eftir að þeir panta fá þeir sent í pósti til sín nokkuð veglega súkkulaðiplötu.    Hmmm jæja, smart hugsuðum við.  Til að við vissum svo sem hvað væri i gangi fengum við svona súkkulaðiplötu hvert og eitt okkar á söludeildinni.  OG maður minn, þvílíkt sælgæti og unaður að borða þetta !!!   Ég hef aldrei á ævi minni smakkað eins himneskt og þetta.  Kollegi minn sem er með sína aðstöðu við hliðina á mér, (sér mig ekki reyndar vegna þess að skápar eru á milli,)  vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann heyrið andvörpin og stunurnar frá minni starfstöð,kom stökkvandi og spurði hvað væri eiginlega í gangi, hélt að mín væri bara að fá heljar fullnægingu þarna um hábjartan dag í vinnunni:)   
Ég get svarið það:  ég fékk það hérum bil við að bragða á þessu. Algjört æði..... og til að upplýsa betur,þá er þetta súkkulaði frá Hafliða í Mosóbakarí,  hvet alla eindregið til að testa þetta hjá honum, nú eða panta prentverk hjá Odda í apríl og fá þetta himneska góðgæti sent heim í pósti.  
Ég hef verið eins og grár köttur í kringum markaðsdeildina í von um að moli hrynji af borðum þeirra, en þau verja þetta með kjafti og klóm.    Vskvinir hafa hringt í mig og sagt sömu sögu ( hmmmm reyndar ekki sagt frá hérumbil fullnægingu hehehe.. ) heldur sagt að þeir hafi hreinlega tárast,  fyllst undarlegri tilfinningu,upplifað hamingjuna og ég veit ekki hvað, en enginn getur lýst þessu almennilega með orðum, menn verða bara að testa þetta.    Súkkulaði er ekki lengur súkkulaði fyrir mér............8)

Heilmikið í gangi hjá mér eins og venjulega.......og toppurinn EKKERT BUIN AÐ REYKJA I VIKU !!!!!!    Húrra fyrir mér.......hver dagur er sigur fyrir mér og ég hugsa bara um einn dag i einu...... gulrætur komnar í ísskápinn til að covera kvöldin  :) 

Aðrar frettir bíða betri tíma.......

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 20:35:58 / kula

þegar stóra "yesið"

Kemur upp í hausinn þá er það frábær tilfinning:))  Var í stærðfræðitíma og loksins kom YESIÐ...hrikalega skemmtilegur tími að því að ég var bara að fatta eitthvað:)).  Labbaði heim skælbrosandi, vongóð, glöð og svei mér ef mér finnst stærðfræði ekki bara skemmtileg:)  Vonandi heldur jessið áfram að koma og ég enda í jibbí:)

Annars mætti ég stórríkri dömu á leiðinni heim,  haldið að Brynja og vinkona hennar hafi ekki setið fyrir utan kaskó og selt dót á tombólu..... hreinsuðu i dótakassa eitthvert gamalt dót og afraksturinn var heilar 1540 krónur !!!  Var eiginlega ekki viss hvernig ég ætti að taka þessu, þar sem sumir höfðu bara gefið þeim 100-200 kr án þess að taka dót i staðinn.    Ekkert of hrifin af þessu, og var að reyna að útlista fyrir Brynju að þetta ætti þá að fara í Rauða krossinn, því það væri ekkert smart að selja svona fyrir sjálfan sig, en hún var nú ekki alveg að kaupa það....hún er komin með græðgisglampa í augun og hefur týnt fram meira dót sem á að selja... er að setja henni stólinn fyrir dyrnar, en samt er beggja blands að skemma nú ekki alveg þessa framtakssemi....veit ekki alveg hvað ég á að gera, var að spá í bera upp við hana, hvernig væri nú að skipta þessu upp, og hún héldi 20% og rest i rauða eða öfugt...hjálp segið mér hvernig á að díla þetta, Dilla ef þú lest þetta, þá þigg ég viturt ráð frá þér:)  og öðrum,please ráðalaus hérna:)

En allaveganna hún er búin að samþykkja að gera þetta ekki aftur nema fá leyfi frá mér og bera upp við mig hvaða dót fari á tombóluna.   

Og þannig var nú þessi dagur.......... skemmtilegur:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 12:39:56 / kula

Allt gott

Hjá mér og mínum.  Er að reyna að setja myndir hér inn, en þær eru alltaf of stórar, er einhver sem getur leiðbeint mér ???

Ég er bara búin að vera í ljómandi fíling, nema vaknaði með þann ógurlegasta hausverk á föstudag sem ég hef ever fengið, var bara hálf meðvitundarlaus fram yfir hádegi, og komst ekki í vinnuna.....sem var slæmt því ég missti af djammi þar seinnipartinn!  Ekki þekkt fyrir að láta svoleiðis framhjá mér fara, en mér var bara um megn að hrista af mér hausverkinn.    Og hef verið með seiðing alla helgina, tók verkjatöflur reglulega, en varð um og ó, þegar Brynja hafði orð a þvi að ég mætti ekki taka svona oft verkjatöflur....  En skárri í dag, verð að fylgjast með þessu,held samt að þetta sé vöðvabólga.
Fór í ræktina i gær og kom út með fílinginn, ohhh hvað þetta var gott:)  Sem fær mann til að hlakka til að fara aftur:)

Ferlegt að koma ser að verki í heimalærdóm, finn mér alltaf ehvað annað að gera, en VERÐ að komast betur i gírinn ef áframhaldandi plön eigi að standast.  Svo mig vantar pepp takk........ :)  
En þar sem krepputal er stanslaust í gangi, ég er að uppgötva að hægt er að fá hluti sem eru bara svaka fínir fyrir lítinn pening.  Mig vantaði td. rúm fyrir Brynju, er alltaf að skoða og plana hvernig rúm hún ætti að fá, en á aldrei pening ( hmmm kreppa eða ekki  ).  En datt inn á barnalandið og fékk svona líka þetta fína rúm fyrir hana með mjög góðri dýnu á fimmþúsund kall !!!    Hún er alsæl með prinsessurúmið, og svei mér, ég held að við hefðum ekki glaðst meira þótt við hefðum keypt fjörtíu þúsund króna rúm úr búð!!  Og um daginn fékk ég gefins flottan og góðan ísskáp.   Vitið þið, það hefur bara komið mér verulega á óvart hvursu glöð og góð tilfinning það var að fá þessa hluti,  hefur vakið mig til umhugsunar,  og velt mér dálítið upp úr henni,  tilfinningunni sko,  fá svona fína hluti án þess að vera með raðgreiðslu dæmi eitthvað eða eyða  af efni fram.    hello....mín að læra í sparsemi.... ég veit að sumum finnst hallærislegt að fá notað dót frá öðrum, en ég er búin að ákveða að það sé bara flott...dót sem sér ekki á og fær framhaldslíf hjá öðrum..er nýtt fyrir þeim.  Bara smart.   Og nú skima ég áfram um, langar í annað sófasett....vantar þurrkara... :):)    Jæja farin i stærðfræðibókina, hmmm þyrfti nu fyrst að hengja upp þvott, þrífa baðherbergið, þurrka af......christ......nei læt það aftur fyrir!

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 22:09:19 / kula

Páskafríið

Var bara alveg yndislegt hjá mér og mínum. Ég átti náðuga daga fyrir fri, dreif mig svo eftir vinnu norður.  Lisa systir kom með mér og við hlustuðum á upplestur um Góða dátan Sjeik á leiðinni:lol:  Þegar norður á AK var komið dreif Lisa sig austur i Bárðardal með Síssý, en ég kíkti til Sillu og skellti mér með henni og hennar kærasta á Vélsmiðjuna, það var nú hressandi og maður sá þarna gamla sénsa...heheh. gaman gaman.   Fimmtudeginum gerði einhverja þæfingsfærð og var ófært austur yfir Víkurskarð, svo ég fékk krakkana til min og við fórum til Vordísar í mat og nutum þess í botn.   Dreif mig svo austur á föstudeginum og þar tóku við kræsingar endalausar alla páskahátíðina og við höfðum það sko rosalega næs hjá mínu kæru fósturfjölskyldu, Síssý og Baldur bara stjönuðu við okkur, við borðuðum, lásum, leystum krossgátur, renndum okkur á sleða, fórum í fjárhúsin og í sund og ég meira að segja kíkti á stærðfræði og fékk snillinginn hann Gest til að sýna mér smá trix i henni.  Bara glæsilegt og langt síðan ég hef slappað svona vel af.  Alveg frábært.
Nú er bara að spýta i lófana, í kvöld kom einstaklega sætur maður að skoða íbúðina og hann sýndi nú áhuga, ( á íbúðinni sko...:(  svei mér, ég vona bara að hann komi með tilboð þó ekki væri nema að ég fengi að sjá þennan myndarlega mann aftur, mikið gasalega er gaman að sjá sæta stráka, ég fór nú i smá daðursfíling bara heheh....  Er bara alveg að gera sig live núna, ég hlakka bara til morgundagsins:))

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 22:00:24 / kula

í gamla daga

var það kallað húsmæðraorlof ef mæður ( og eiginkonur) fengu tima til að eyða bara með sjálfri sér, engin eldamennska, ekkert nema sinna sjálfri sér.  Reyndar fóru þær þá yfirleitt held ég i einhversskonar húsmæðraferðalög, en í dag byrjaði viku húsmæðraorlofið mitt, þar sem Brynja og Róbert fóru norður með pabba sinum til að vera við fermingu systur sinnar, Mörtu dúllu sem er að fermast á laugardaginn. Sem fær mann til að minnast þess hversu stutt er nú síðan hún var lítil að koma til okkar:)  
Anyway ekki fer ég nú í ferðalag, ekki einu sinni að fá mér frí úr vinnu,  en mikið rosalega ætla ég að  njóta þess að vera ein á bænum, á morgun BEINT eftir vinnu ætla ég í ræktina og síðan í nudd og gufur, svei mér ef ég fæ mér ekki hvítvín í spainu og les einhver slúðurblöð og sofna svo i lazyboy stól......    Mikið hlakka ég til:)   Framhaldið er óráðið en ég finn örugglega út eitthvað skemmtilegt að gera.
tók með mér þrjar bækur úr vinnunni,   fer i fermingarveislu á laugardag og ætla mér meðvitað og ákveðið að dúllast eins og ég get.   Pottþétt að láta mér ekki leiðast:)  Að þeim orðum sögðum læt ég renna í freyðibað, músík, og hrukkukremið á feisið.....:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 14:45:36 / kula

frábær sýning

hjá krökkunum í Laugalandsskóla:d  Róbert minn stóð sig einstaklega vel og sýndi ásamt sínum bekk hvorki meira né minna 3 dansa, tvist -línudans og einhvern óskilgreindan:) mikið svakalega var ég stolt af mínum dreng og ekki laust við að ég fengi tár og kökk í hálsinn að sjá hvað honum gengur vel þarna og sá hvað hann á góða vini og félaga þarna.   Tók mömmu með og svo fengum við bónus að sjá frænda okkar hann Aron leika burðarhlutverk í leikriti og söng sem elstu bekkir sýndu.  Hann frændi minn hefur ótvíræða leikhæfileikia og var geysilega flottur.    Svo voru rosa flottar veitingar og þetta var verulega gaman.    Fékk svo óvænt litlu skottu hana Bryndísi sem næturgest, og það var ekki leiðinlegt, hún er svo mikil rúsínu bolti að það hálfa væri nóg, alveg eins og engill hjá okkur Brynju,  og Brynja stóð sig vel sem barnapía. 

Opnaði bók í gærkveldi og það var segin saga, ég lagði hana ekki frá mér fyrr en henni var lokið núna rétt áðan.  Er hálf sorgmædd og meyr eftir lestur þessarra bókar,  heitir Vonin deyr aldrei og er um konu sem giftist  einhverjum gæja frá Malasíu og hann rændi svo börnum þeirra og fór með þau til Malasýu og elur þau upp eftir bókstafstruar múslímskum aðferðum.   Bókin hafði mikil áhrif á mig og ég skældi nú aðeins yfir örlögum þessarrar konu,  en um leið dáðist af þrautseigju hennar.       Það er eins og lesa veröld úr öðrum heimi að lesa svona.    Áhrifarík saga.

En við Brynja ætlum i ísleiðangur núna, og síðan að dinglast í tilltekt og svona. kannski maður kíkir í námsbækur þegar tekur að rökkva:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 10:58:43 / kula

Góðan daginn

Ljómandi lítur þessi dagur vel út;)  Eg er á leið austur að horfa á Róbert leika á árshátíð skólans, eða hann dansar skilst mér, hlakka svo til að sjá það, og dagurinn er bjartur og fallegur, svo heiðin ætti ekki að vera vandamál.:)    Uppgötvaði um daginn hve vel hægt er að gleðjast yfir litlu, málið var að ísskápurinn minn sem er líklega hátt á fertugsaldri, hljóðnaði eitt kvöldið, þegar ég ætlaði að fá mér mjólkurglas  þá furðaði eg mig á þvi hversu volg mjólkin væri, og áttaði mig á að háværa suðið i skápnum væri þagnað.
Ég slökkti og kveikti á honum og þá fór örlítið að suða aftur.   En þar sem ég vissi að blessaður skápurinn væri bara að gefa mér viðvörun, fékk ég pinu panik kast þvi ekki er pláss í fjárhagsáætlun fyrir kaupum á nýjum ísskáp.  Þar sem ég er að hugsa þetta i vinnunni daginn eftir og finna leið til að versla nýjan ísskáp, þá var ég komin í þann þankagang að finnst ég þyrfti hvors sem er að fara i visa rað eitthvað að þá myndi ég versla mér þurrkara líka, og svei mér ef dúndur ryksuga flögraði ekki fyrir augunum á mér lika, var bara að verða nokkuð sátt við það að bæta einni fúlgu við mánaðarlega á visað.....sem er samt nógu bólgið nú þegar.

En þá benti ein i vinnunni mer á að tékka á gefins a barnalandinu, ég geri það og þá hafði barasta a sömu mínútu og mín er að uppgötva volgu mjolkina verið færð inn færsla þar sem fínasti 4 ara wirlpool ísskápur er auglýstur gefins gegn þvi að verða sóttur í Kef.

Og ég stökk á þetta, fékk minn góða vin Jonna til að redda bíl og við sóttum stóran og fínan ísskáp sem er kominn á stað eldri skáps.   Og svei mér, ég held ég hafi ekki glaðst meira lengi yfir að eignast einhver hlut,   fannst þetta dálítið með ólíkindum þegar ég sá að tímasetningin á færslu og suðstoppið á mínum eldri skáp var skringillega nálægt.:d

Varð mér umhugsunarefni að oftar mætti ég nú finna vel fyrir gleði og þakklæti yfir litlum hlutum, þetta var nefnilega soldið sterkt í mínum huga þessi upplifun.

Visa raðið mitt fær annað tækifæri það er ég viss um, en einmitt ekki núna, sem var verulega gott,  ég a eftir að sakna míns gamla háværa Husqvarna ísskáps, sem var bara verulega krúttlegur, blessuð veri minning hans... áfram verður þvottur þurrkaður á snúrum og ryksuga fengin að láni hjá nágranna þegar sameignin er tekin.  
En nú þotin af stað yfir hellisheiði og veit að dagurinn i dag verði einstaklega góður:lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 22:46:54 / kula

Komin

Jæja þá er eg komin aftur.....fór eftir leiðbeiningum.   Og svo lendi ég í þvi að vera áskrifandi á orðabók.is og mér tókst að gleyma algjörlega lykilorði og meira að segja aðgangsorði og er læst uti þar nuna:evil:   Semsagt ég og lykilorð eigum ekki samleið, mér tekst á undraverðan hátt að klikka alltaf allstaðar á lykilorðum , sama hvursu einfalt kerfi eg finn upp, skrifa hlutina hja mer, ég rugla þessu öllu saman, skipti um lykilorð og man svo ekkert.     Enda eru lykilorðin svo mörg allstaðar að maður veit bara ekkert i sinn haus.    En eg hlýt að læra af reynslunni

Annars bara hversdagslifið i bloma,  og allt i guddy, og frekar rolegt yfir öllu

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti